Frítt bestunarlíkan fyrir skilti og skiltaundirstöður

Forritið reiknar út fjölda, hæð og ummál stólpa og undirstaða með tilliti til vindálags, jarðvegstegundar, svæðisflokkunar og þyngd skiltis. Allir útreikningar eru samkvæmt EN 12899 staðlinum.

Velkomin til Jerol Industri AB

Jerol Industri AB framleiðir árekstursvæna stólpa búna til úr glertrefjaplasti. Jerol stólparnir eru framleiddir í Svíþjóð í framleiðsluhúsnæði sem er búið aðeins nýjustu og fullkomnustu  tækni. Framleiðslan er algerlega tölvustýrð sem tryggir að hver og einn stólpi er fullkomlega einsleitur.

Jerol er eini framleiðandinn í Evrópu með heildar vöruflokka af vegstólpum, ljósastólpum, merkjastólpum og skiltastólpum, árekstrarprófaðir og samþykktir samkvæmt EN12767.
Jerol hafa verið virkir í „passívu öryggi“ síðan 1999, og eru í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum í öryggislausnum á Evrópskum vegum.

Í dag framleiðum við einnig stólpa fyrir íbúðarhverfi sem eru léttir og einfaldir í uppsetningu.

Allir stólpar eru reiknaðir út samkvæmt EN 40.  Framkvæmdarstjóri Jerol Industri AB og hönnuður allra Jerol stólpanna er Rolf Jernström, hann hefur einnig hannað meiripart tækjabúnaðarins sem er nauðsynlegur til framleiðslu á Jerol stólpum.

Jerol Industri AB, Box 62, SE-815 22 Tierp, Svíþjóð. Sími +46 293 663 10. Fax +46 293 663 19